Nýjustu Fréttir

1. fundur vetrarins.

  • Fyrsti fundur vetrarins var haldinn sl. laugardag á óhefðbundnum fundartíma eða kl. 13. Það mættu 15 félagar og voru menn bara ferskir í upphafi nýs starfsárs. Var farið yfir fundarplan vetrarins, nefndaskipan og stallaraskipan. Páll Janus Pálsson þakkaði fyrir góðan hug og gjöf sem honum var færð á 90 ára afmælisdaginn þann 30. júlí sl. Þess má geta að Páll Janus er einn af stofnfélagum Lionsklúbbs Patreksfjarðar.